Mynd
Mynd
Mynd
Íslenska
English
Svenska
Dansk
Deutsch
Bjarteyjarsandur í Hvalfirði
- Ferðaþjónusta og
sauðfjárrækt

 

Ábúendur:
Kolbrún, Sigurjón, Sigurður,
Arnheiður, Guðmundur og Bjartey

 

Símanúmer:
433-8851/433-8831/
891-6626/862-1751

 

Netfang: arnheidur@bjarteyjarsandur.is   

Kanínur

 

Í fjárhúsunum erum við með eitt kanínubúr með tveimur kanínum, þeim Kát og Karólínu. Þau eru engar venjulegar gæludýrakanínur, heldur afar sérstakar feldkanínur af tegundinni Castor Rex. Þær eru sérstaklega mjúkar viðkomu, en það orsakast af því að öll hárin á feldinum þeirra eru jafnlöng. Það er eins og að koma við flauel að strjúka feldinn þeirra.

 

Kátur og Karólína eru talsvert stærri en venjulegar gæludýrakanínur. Þær eru ekkert rosalega gæfar, a.m.k. ekki við ókunnuga. Þær eiga það meira að segja til, ef þær verða hræddar, að reyna að bíta! En það er tiltölulega auðvelt að vingast við þær, t.d. með því að gefa þeim grænt gras að borða, fíflablöð eða arfa. Þá kætast þær verulega og gleyma sorg og sút!